Upplifun stjórnenda

Mælaborðið hjálpar stjórnendum að hvetja til, stjórna og mæla helgun og árangur.

Framúrskarandi efni og öflug tækni sem eflir starfsþróun.

Mælaborð stjórnenda á Impact platform er hannað til að hjálpa stjórnendum að hafa umsjón með efni, mæla niðurstöður með hagnýtum gögnum og vakta framvindu.  Þannig gefst tækifæri til að taka markvissar ákvarðanir um þjálfun, þróun og stuðning við hvern og einn.

Auðvelt

Auðvelt að setja fyrir efni

Mælaborð Impact platform er einfalt, skilvirkt og aðgengilegt. Það tekur nokkrar sekúndur að úthluta efni til nemenda og þekkingarveitan sér sjálfkrafa um dagsetningar, virknipósta og dreifingu 360° matsins – sem hvetur til þátttöku og yfirfærlu þekkingar og þar með raunverulegan og mælanlegan árangur.

Öflugt

Öflugt efni með sveigjanlegri nálgun

Markvisst og faglegt efni okkar ýtir undir þróun á lykilfærniþáttum atvinnulífsins til að auka færni og getu notenda a sviðum sem skipta sköpum. Vettvangurinn býður upp á sveigjanlega nálgun:  á vettvangi, í fjarnámi, með snjallnámi (On Demand), fróðleiksmolum, áföngum og stuðningi markþjálfa.  Þekkingarveita FranklinCovey mætir nemendum þar sem þau eru stödd hverju sinni.

Mælanlegt

Mælanlegar niðurstöður

Aðgangur að virkniskýrslum, myndritum og tölfræði um virkni notenda veitir stjórnendum sýnileika á arðsemi fjárfestingarinnar (ROI) og hagnýt gögn fyrir stefnumótandi náms- og þróunarákvarðanir.

Vottað

Vottun innri þjálfara

Sérstakur aðgangur fyrir leiðbeinendur veitir innri þjálfurum vinnustaða tækifæri til að hljóta vottun í nokkrum tugum námslína FranklinCovey, sækja glærur, handbækur, leiðbeiningar, myndbönd, leiki og læra um fullorðinsfræðslu.  Þjálfun þjálfara er mögnuð leið til að innleiða stefnu og umbreyta menningu með ykkar þjálfurum og okkar efni.

Það var einstaklega ánægjulegt að vinna með og útfæra efni Franklin Covey og samtvinna það þjónustustefnu Strætó. Að tryggja tryggð viðskiptavina er mikilvægur þáttur í allri þjónustustjórnun en efnið hentar ekki síður inn í teymi þar sem unnið er með grundvallarþætti samskipta og trausts; samkennd, ábyrgð og örlæti.

 

Sigríður Harðardóttir
Sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs