360° mat á frammistöðu

Sannreyndu stöðuna með faglegri greiningu.  Matstæki FranklinCovey veita einstaka innsýn í núverandi stöðu og styrk og varpa ljósi á tækifæri til umbóta.  360° matið er stafrænt, persónulegt og afar einfalt í notkun og má nota á fleiri en 20 tungumálum.  Um er að ræða gagnlegar spurningar og samantekt frá yfirmanni, jafningjum, undirmönnum og umsagnaraðilum utan vinnustaðar.  Niðurstöður matsins er fyrsta skref til aukins sjálfskilnings og vaxtar.

Dæmi um greiningartæki:

01

The 7 Habits Benchmark – greining á persónulegri forystu og árangri með hliðsjón af 7 venjum til árangurs. Varpar m.a. ljósi á frammistöðu tengda frumkvæði og ábyrgð, stefnu og sýn, forgangsröðun og tímastjórnun, tilfinningagreind, samningatækni, hlustun, miðlun og markþjálfun, umbótum og nýsköpun auk endurnýjunar og vaxtar.

02

tQ (Trust Quotient) – greining á lykilþáttum við að rækta traust milli einstaklinga, deilda, vinnustaða, á markaði og í samfélagi – auk sjálfstrausts. Varpar ljósi á ásetning, heilindi, færni og árangur við að efla traust.

03

LQ (Leadership Quotient) – greining á 4 lykilhlutverkum leiðtoga m.a. viðhorf, getu og árangur þátttakanda á að skapa og miðla sýn, innleiða stefnu, skapa traust og virkja aðra til árangurs.

04

The 5 Choices to Extraordinary Productivity – greining á grunnfærni til að auka framleiðni og velferð meðal annars með hliðsjón af forgangsröðun, stefnufestu, ákvörðunartöku, markmiðasetningu, skýrleika hlutverka og ábyrgðar, orkustjórnun og nýtingu tækni.

05

Project Management Essentials – grunngreining á færni við verkefnastjórnun.

06

Presentation Advantage – grunngreining á framkomu og framsögn (enska).