Hraði trausts®: Grunnur

Traust: Afgerandi færni sem má læra.
Einn mikilvægasti gjaldmiðill okkar tíma er traust.
Okkar sítengdi veruleiki byggir á samstarfi sem grundvallast á trausti: sjálfstrausti, trausti milli einstaklinga, trausti milli deilda og vinnustaða og trausti á markaði og innan samfélags. Líkt og hver önnur grunnstoð má læra að rækta traust og með mestölubókinni Hraði trausts getur vinnustaðurinn þinn komist hjá lamandi og tímafreku skrifstofuveldi sem verður til vegna vantrausts, og hefjast strax handa að hraða viðskiptum þínum og virðissköpun með því að ferðast á hraða sanns trausts.
Skiptu vantrausti út fyrir framleiðni og óvissu út fyrir árangur í gegnum traust.
Með miklu trausti aukast traust samskipti, sköpun og helgun til muna. Framleiðni verður meiri og kostnaður minni þegar athygli er beint að markmiðum frekar en að tortryggni og pirringi.
Á námskeiðinu Hraði trausts® Grunnur, verða einstaklingar hæfari með því að nota rétta rammann, tungumálið og hegðunina sem leiðir til mikils trausts hjá teymum og vinnustöðum.
Fölsun menningar á þínum vinnustað.
Upplýsingar um námskeið
Lausnin
Á námskeiðinu Hraði trausts: Grunnur, læra einstaklingar að greina og bregðast við “gjám trausts” í þeirra eigin trúverðugleika og samböndum í starfi. Með því að nota raunveruleg dæmi í vinnustofunni munu þátttakendur læra að:
- Virkja 13 athafnir til að þróa, endurbyggja og sýna traust.
- Skapa traustsáætlun (e. Trust Action Plan) til að auka persónulegan trúverðugleika og áhrif.
- Æfa samskipti sem einkennast af gagnsæi, virðingu og heiðarleika.
- Greina hvernig má virkja traust í öllum samskiptum.
- Bæta árangur með því að standa við skuldbindingar með samstarfsfólki (e. Peer Accountability Process)
Við hverju má búast
Virði trausts
- Byggja upp virði trausts með því að greina áhrif traustskatta og ávinninga trausts í núverandi verkefnum.
Sjálfstraust
- Sýna traust í verki í gegnum karakter og hæfni og taka ábyrgð á því að auka eigin persónulegan trúverðugleika.
Traust í samböndum
- Skipta út falsaðri hegðun með 13 athöfnum til þess að þróa, endurbyggja og sýna traust í lykilsamböndum.
Áhrifin
Vinnustofan Hraði trausts: Grunnur færir þátttakendum tækifæri til að bæta samskipti, auka hraða og rækta traust meðal samstarfsmanna, milli deilda, með viðskiptavinum, á markaði og í samfélaginu.
Fyrirkomulag vinnustofu
Betri samskipti, hraði, fagmennska á grunni trausts

Markhópur
Námskeiðið hentar fyrir alla starfsmenn vinnustaðarins.
Tímalengd
Vinnustofa á vettvangi er samtals 8 klst. Oft kennt á 2 hálfum dögum. Stafrænar lotur eru 10 x 20 mínútur. 360° mat fyrir og eftir vinnustofu.
Innifalið
Vönduð vinnubók þátttakenda – á íslensku eða 20 öðrum tungumálum. Hraði trausts: Aðgerðaspil Hraði trausts: Bók Hraði trausts: Appið Aðgerðaráætlun um traust (TAP) Ítarleg 360° skýrsla fyrir hvern og einn og hópinn

Traust er grundvöllurinn fyrir því að allt gangi, grundvöllurinn að samheldnu árangursríku teymi. Allir sem hafa áhuga á að ná árangri ættu að fara í gegnum þetta efni.
Frí handbók
10 samtöl til að byggja upp traust
Tól fyrir leiðtoga á öllum stigum vinnustaðarins.
Stafrænt fræðslusetur
All Access Pass®
AAP áskrift felur í sér aðgang að öllum lausnum FranklinCovey á íslensku.
Hvernig þú getur hagnýtt aðferðir og verðlaunaefni FranklinCovey
Þetta námskeið er innifalið í All Access Pass® á vegum FranklinCovey. Sú áskrift veitir vinnustað þínum ótakmarkaðan aðgang að öllu okkar efni, hvar og hvenær sem er.

Stafræn vinnustofa
Kraftmikil fjarnámskeið með ykkar eða okkar þjálfurum.
Vinnustofa á vettvangi
Skemmtilegar og áhrifaríkar vinnustofur á vettvangi.
Fjarnám
Öflug stafræn þjálfun sem er aðgengileg fyrir fólkið þitt hvar sem er, hvenær sem er.