Samskipti og samstarf

Hjálpaðu leiðtogum þínum að koma hugmyndum á framfæri á skýran hátt og vinna á áhrifaríkan hátt með teymum sínum.

Bættu skilvirkni leiðtoga þinna með betri samskiptum og samvinnu.

Þegar þú hugsar um leiðtogana sem þú vinnur best með, hvaða eiginleika hafa þeir sem þú telur stuðla að góðri samvinnu? Góð samskiptahæfni og góð samvinna eru líklega efst á listanum þínum. Fyrir leiðtoga eru samskipti og samvinna ekki bara skemmtileg. Þessi færni er mikilvæg fyrir teymi þeirra – og fyrirtæki þitt í heild sinni – til að ná árangri.

Árangursríkir leiðtogar vita hvernig á að deila hugmyndum á skýran hátt, gefa raunhæfa endurgjöf og veita viðeigandi upplýsingar og samhengi til að fá hagsmunaaðila með sér. Þeir skilja hvernig á að þýða framtíðarsýn í áþreifanleg markmið, áætlanir og niðurstöður. Og þeir hika ekki við að eiga erfiðar samræður við samstarfsaðila sína eða næstu undirmenn þegar þörf krefur.

Jafnvel vanir leiðtogar geta notið góðs af viðbótarþjálfun til að bæta samskipti og leiðtogahæfileika. FranklinCovey sameinar efni sem byggir á lögmálum, sérfræðiráðgjöf og nýstárlegri tækni sem mun veita leiðtogum þínum þau úrræði og innsýn sem þeir þurfa til að verða áhrifaríkir í samskipum, hæfir leiðbeinendur og stefnumótandi verkefnastjórar.

Lykilatriði fyrir samskipta- og samvinnufærni

Frábærir leiðtogar vita hvernig á að koma skilaboðum sínum á framfæri á hvaða miðli sem er, nálgast krefjandi samtöl við samstarfsfélaga og setja upp verkefni til að ná árangri.

Að skrifa

Skrifar á skýran, hnitmiðaðan og lesendamiðaðan hátt

Að kynna

Getur haldið kynningar og átt í samskiptum á áhrifaríkan hátt í opinberum aðstæðum

Að eiga erfið samtöl

Byrjar og nálgast efið samtöl með fyrirbyggjandi hætti

Að stjórna verkefnum

Setur skýr og sértæk markmið fyrir verkefni með væntingar um viðeigandi ábyrgð

Frí handbók

6 leiðir til að byggja traust

Nýttu þér eftirfarandi safn af góðum starfsvenjum FranklinCovey til að byggja upp traust og hvetja þannig teymi til að ná markmiðum árangurs. Á sama tíma má stuðla að faglegri þróun fólks, aukinni framleiðni þess og helgun í starfi.

Námskeið

7 venjur til árangurs™

7 venjur til árangurs er einnig sannreynt kerfi sem stuðlar að bættum árangri innan teyma. Þátttakendur auka helgun, starfsanda og samvinnu. Teymi munu ganga frá borði með aukna samskiptafærni og bætt sambönd.

Máttur vegferðarinnar

Varanleg hegðunarbreyting kemur innan frá. Hvernig einstaklingar eru og hvernig þeir líta á heiminn hefur áhrif á þátttöku og leiðtogahæfni þeirra. Lærdómsvegferðir okkar sameina rannsóknarmiðað efni okkar, sérfræðiráðgjöf og öfluga tækni til að hjálpa fólki að breyta hugarfari sínu og hegðun.

Kynntu þér þessi dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.

Samvinna til að bæta árangur

  • 01 Stafræn vinnustofa

    7 venjur til árangurs®

    Leiðin að viðvarandi og varanlegum árangri er möguleg þegar einstaklingar geta leitt sjálfan sig á áhrifaríkan hátt, haft áhrif á, tekið þátt í og unnið með öðrum og stöðugt bætt og endurnýjað getu sína.

    Lengd : 2-3 dagar

  • 02 Jhana

    Betri samvinna og hugmyndagerð – ráð frá Improv hóp

    Hvað geta stjórnendur lært af spunagrínistum sem búa til sketsa á staðnum? Meira en þú heldur.

    Lengd: 5 mín

  • 03 Innsýn

    Leið að samvirkni® fyrir teymi

    Samvirkni er besta leiðin til að leysa vandamál, taka ákvarðanir, semja um lausnir og að nýsköpun vegna þess að það byggir á hugmyndum og gjörðum margra.

    Lengd: 15 mín

  • 04 Lausn

    Traust í samböndum

    Byggðu upp traust með teyminu þínu og bættu afkomu fyrirtækja. Finndu út hvernig á að leysa ágreining, styðja aðra, bæta viðskiptasambönd og auka hraða á markaði á sama tíma!

    Lengd: 30-60 mín

  • 05 Innsýn

    Tengsl

    Til að skapa raunveruleg tengsl við aðra manneskju verður þú að fylgjast með og vera til staðar. Að tengjast öðrum er undirstaða persónulegrar framleiðni.

    Lengd: 15 mín

     

Hjálpaðu vinnustaðnum þínum að þróa samvinnuþýða og árangursríka leiðtoga.

Hafðu samband.