All Access Pass®
Þægilegur aðgangur að áhrifaríku námsefni FranklinCovey, ásamt gagnlegum tólum og gögnum til aukins árangurs
Við sameinum vandað efni, sérfræðikunnáttu, öflugan vettvang til breytinga á hegðun og einfalda tækni. Saman leiða þessir þættir leiðtoga og teymi um allan heim í gegnum lærdómsvegferðir sem skila mögnuðum árangri í hvert sinn.
Þegar vinnustaðir vinna með okkur umbreytir starfsfólk hegðun sinni—bæði sameiginlega og einstaklingshegðun—á árangursríkan hátt. Saman getum við leyst stærstu áskoranir vinnustaðarins og náð tímamótaárangri.
All Access Pass® FranklinCovey aðstoðar þig við að hámarka virði fjárfestingar í lærdómi og þróun vinnustaðarins með því að veita þér ótakmarkaðan aðgang að margverðlaunuðu efni okkar, öflugum tólum og sérfræðiþekkingu. Þannig bjóðum við þér með okkur í vegferð árangurs með því að þróa einstaka lærdómsupplifun, sem er sérstaklega sniðin að þörfum vinnustaðarins þíns.
All Access Pass® er vettvangur til að takast á viða stærstu áskoranirnar sem vinnustaðir standa frammi fyrir í dag og á morgun og efni okkar er hannað til þess að stuðla að auknum árangri hjá liðsmönnum, teymum og leiðtogum á vinnustaðnum.
- SVEIGJANLEIKI: Þú getur nálgast FranklinCovey efnið á marga vegu.
- ÁHRIF: Skipuleggðu efnið okkar í kringum sértækar þarfir vinnustaðarins og hvers starfsmanns.
- VIRÐI: Auktu verulega árangur á lægra verði per þátttakanda.
Hvað er innifalið?
Innifalinn er aðgangur að öllu námsefni, tólum, matstækjum, myndböndum, stafrænum lærdómseiningum og námskeiðum FranklinCovey— á vettvangi, stafrænt eða í fjarnámi (On Demand). Að auki vottun innri þjálfara með kennslugögnum og stuðningi og stafrænn mentor Jhana.
Efni
Hjálpaðu leiðtogum þínum að breyta hugarfari og hegðun með margverðlaunuðu námsefni okkar sem byggir á tímalausum lögmálum mannlegs árangurs.Fólk
Virkjaðu sérþekkingu ráðgjafa okkar eða vottaðu innri þjálfara ykkar til leiða magnaðar vinnustofur til aukins árangurs á vettvangi.Tækni
Vaktaðu framvindu hvers og eins með nýstárlegum tæknilausnum, sem vekja áhuga og helgun þátttakenda og tendra viðvarandi breytingar.Þjónusta
Nýttu reynslu okkar til að sérsníða námsefni okkar að ykkar þörfum til vaxandi árangurs á þínum vinnustað.Fáðu innsýn í hvernig áskrift að AllAccessPass eflir færni og grunnþekkingu allra starfsmanna.
Having the All Access Pass has allowed us to be able to build a great leadership development program at an affordable price. The flexibility of having on demand, virtual and classroom delivery options included in the pass, ensures that all of our leaders can participate regardless of location and time constraints. The AAP has really been a game changer for us.
24
$200mm+
35+
Stjórnendur Icelandair fóru í gegnum 4 Essential Roles of Leadership og fengu í framhaldi aðgang að öllu FranklinCovey efninu á vefnum (AllAccessPass). Mikil ánægja var með þjálfunina og hentaði hún jafnt reynslumiklum og reynsluminni stjórnendum félagsins og gaf þeim ýmis hagnýt verkfæri. Guðrún Högnadóttir er frábær leiðbeinandi og aðstoðaði okkur mjög vel við að aðlaga efnið að okkar stefnu og áherslum.
Frí handbók
Hjálpaðu teymi þínu að blómstra í fjarvinnu
Lærðu hvernig þú getur aukið helgun hjá starfsfólki þínu hvar sem er með þessum 8 ráðum til að efla helgun, samvinnu og liðsanda.
Frítt vefvarp
Kynning fyrir notendur All Access Pass
Ertu nú þegar með aðgang að All Access Pass? Taktu þátt í þessu klukkustundar vefvarpi til að læra hvernig þú getur nýtt aðganginn til þess að ná þjálfunar- og þróunarmarkmiðum.
Hvernig þú getur hagýtt aðferðir og verðlaunaefni FranklinCovey
Stafræn vinnustofa
Kraftmikil fjarnámskeið með ykkar eða okkar þjálfurum.
Vinnustofa á vettvangi
Skemmtilegar og áhrifaríkar vinnustofur á vettvangi.
Fjarnám
Öflug stafræn þjálfun sem er aðgengileg fyrir fólkið þitt hvar sem er, hvenær sem er.
Veldu áskrift sem hentar ykkar sókn best.
Personal Effectiveness Pass
Veitir grunnfærni, hugsun, verkfæri og þekkingu á þinni persónulegu vegferð. Persónulegur aðgangur að þekkingu á sviði leiðtogafræða, stjórnunar, framleiðni ofl.
Meðal lausna:
All Access Pass (AAP)
Þróaðu framúrskarandi leiðtoga sem sjá tækifæri og hvetja fólk til sameiginlegrar breytingar á hegðun og drífa þannig áfram framúrskarandi árangur. AAP inniheldur einnig allt efni út Personal Effectiveness Passanum.
Meðal lausna
All Access Pass Plus (AAP+)
Hannað fyrir vinnustaði sem þurfa að leysa sértæk rekstrarviðfangsefni til viðbótar við AAP m.a. á sviði sölustjórnunar, þjónustustjórnunar og framkvæmdar stefnu.
Meðal lausna:
Máttur vegferðarinnar
Varanleg breyting á hegðun hefst innan frá — á því hver við erum og hvernig við sjáum heiminn sem yfirfærist á hvernig við virkjum og leiðum aðra. Lærdómsvegferðir okkar sameina öflugt námsefni, teymi sérfræðinga, kraftmikinn vettvang og öfluga tækni sem hjálpar fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun.
Kynntu þér dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.
Taktu þátt í vefvarpi
Kannaðu vefvörp okkar sem eru leidd af okkar helstu sérfræðingum. Með þeim muntu læra að bregðast við lykiláskorunum á vinnustaðnum til að ná framúrskarandi árangri með og í gegnum teymið þitt.
Læra meira