Stjórnaðu breytingum

Viðhaltu og bættu menningu árangurs – sérstaklega þegar vinnustaðurinn stendur frammi fyrir breytingum

Takið breytingum fagnandi á vinnustaðnum.

Breytingar eru alls staðar. Stundum eru breytingar fyrirbyggjandi – vinnustaðir endurskipuleggja deildir til að bæta samstarf, eða ráða nýjan leiðtoga til að auka sérfræðiþekkingu. Í öðrum tilfellum skapast breytingar því bregðast þarf við einhverju óvæntu á markaðnum. Eitt er víst: að leiða sig og aðra í gegnum breytingar er hæfileiki sem allir í liðinu þínu þurfa til að ná árangri.

Þegar staðið er frammi fyrir breytingum einblína margir vinnustaðir eingöngu á ferlið. Ferlið er mikilvægt, en þegar öllu er á botninn hvolft er það fólkið þitt sem lætur breytingar verða að veruleika. Því miður er fólk oft vant því að bregðast illa við breytingum sem getur valdið því að teymið þitt finnur fyrir streitu, óróleika eða vanmætti.

Til að byggja upp og viðhalda góðri menningu verða leiðtogar að stíga inn. Það felur í sér að hjálpa fólki að skilja hvernig breytingar virka svo liðsmenn hafi getu til að taka þátt í breytingaferlinu þegar það er framkvæmt.

FranklinCovey sameinar efni sem byggir á lögmálum, sérfræðiráðgjöf og nýstárlegri tækni sem veitir teymum þínum rétt úrræði og innsýn til að takast á við breytingar. Vinnustaðurinn þinn getur viðhaldið trausti og velgengni og tryggt virðingu ef leiðtogar hafa traustan skilning á viðbrögðum fólks, kunna að virkja einstaklinga á tímum breytinga og geta séð tækifæri í breytingum.

Lykilþættir fyrir breytingar

Sveiganleiki og opinn hugur er hæfni sem allir liðsmenn þurfa til að takast á við breytingar.

Að stjórna breytingum

Byggir umhverfi þar sem fólk getur tekist á við breytingar með tilfinningavitund og þrautseigju.

Aðlögunarhæfni

Innleiðir árangursvenjur sem hvetur fólk til að gera sitt besta og aðlaga sig breytingum.

Frí handbók

Að miðla upplýsingum um breytingar

Hvernig þú tjáir þig um breytingar við liðsmenn hefur mikil áhrif á skilning þeirra og getu til að aðlagast. Allar breytingar fela í sér röskun en stjórnendur geta lágmarkað þessi áhrif í gegnum árangursrík samskipti.

Námskeið

Breytingastjórnun: Að breyta óvissu í tækifæri™

Þó sérhver breyting sé einstök, á sama fyrirsjáanlega mynstrið við þær allar. Með því að kunna að greina þetta mynstur og rækta færnina til að takast á við breytingar á árangursríkan hátt er auðveldara fyrir okkur að greina hvernig við hyggjumst halda áfram—jafnvel á krefjandi tímum.

Máttur vegferðarinnar

Varanleg breyting á hegðun hefst innan frá — á því hver við erum og hvernig við sjáum heiminn sem yfirfærist á hvernig við virkjum og leiðum aðra. Vegferðir okkar sameina öflugt efni, teymi sérfræðinga, kraftmikinn vettvang og öfluga tækni sem hjálpar fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun.

Kynntu þér dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.

Nálgastu breytingar á árangursríkan hátt

  • 01 Stafræn vinnustofa

    Leiddu sjálfa(n) þig í gegnum breytingar

    Breytingar eru alls staðar og þær gerast hraðar en nokkru sinni fyrr. Þessi lota mun hjálpa þér að læra að skilja breytingar og bregðast við þeim á skilvirkari hátt bæði í lífi og starfi.

    Lengd: 120 mín

  • 02 10 mínútna verkefni

    Skoðaðu þína eigin nálgun við breytingum

    Finnst þér breytingar óumflýjanlegar? Streituvaldandi? Spennandi? Eitthvað sem þú getur bætt þig í? Taktu þetta sjálfsmat til að læra meira um viðhorf þín, viðbrögð og hegðun.

    Lengd: 10 mín

  • 03 Jhana

    Þegar breytingar hlaðast upp

    Hvað getur þú gert þegar breytingar á vinnustaðnum hlaðast upp og þér finnst þú ekki ráða við þær? Meira en þú heldur!

    Lengd: 5 mín

  • 04 Myndband

    3 spurningar til að tendra nýsköpun eftir breytingar

    Allir breytingar skapa nýtt landslag möguleika. Ráðgjafi FranklinCovey, Marché Barney, deilir hvernig á að koma auga á og nýta þessi tækifæri.

    Lengd: 3 mín

  • 05 Lausn

    Venja 1: Vertu virkur®

    Allt áreiti í heiminum í kringum þig ýtir undir viðbrögð hjá þér. En það skapast rými milli áreitis þar sem þú getur valið viðbrögð þín og ákveðið að vera virk(ur).

    Lengd: 30-60 mín

  • 06 Innsýn

    Stóru steinarnir

    Að koma öllu fyrir í deginum getur verið krefjandi, en það verður mun auðveldara ef þú einblínir bara á það mikilvæga (stóru steinana).

    Lengd: 10 mín