Virkjaðu tímalaus lögmál árangurs með þessari hagnýtu samantekt úr mest seldu bók allra tíma um leiðtogahæfni.
7 venjur til árangurs®
Öflugar venjur til persónulegrar forystu
Metsölubók Stephen R. Covey, 7 venjur til árangurs heldur áfram að toppa metsölulista vegna þess að hún tekur ekki mið af skammtímatískubylgjum og ‘pop psychology’ og einblínir þess í stað á tímalaus lögmál jafnréttis, ásetnings, helgunar, heiðarleika og virðingar.
7 venjur til árangurs hefur veitt lesendum innblástur í meira en 25 ár. Hún hvatti einnig til aukinnar framleiðni og annarra breytinga hjá milljónum þvert á aldur og starfsgrein.
Það skiptir ekki máli hve hæfur einstaklingur er, hann mun ekki ná að viðhalda árangri án þess að geta leitt sjálfan sig, helgað, hvatt til dáða og unnið í samvinnu við aðra ásamt því að endurnýja stöðugt eigin getu. Þessir þættir eru það mikilvægasta hvað varðar árangur hjá einstaklingum, teymum og vinnustöðum í heild.
Venja 1: Vertu virk(ur)®
Einblíndu á og bregstu við því sem þú getur stjórnað og haft áhrif á frekar en það sem þú hefur ekki stjórn á.
Venja 2: Í upphafi skal endinn skoða®
Skilgreindu hvað árangur merkir fyrir þig og hvernig þú hyggst ná árangri.
Venja 3: Mikilvægast fyrst®
Forgangsraðaðu og náðu mikilvægustu markmiðunum frekar en að vera stöðugt að bregðast við áríðandi málefnum.
Venja 4: Hugsaðu Vinn-Vinn®
Virkjaðu árangursríkara samstarf með því að skapa sambönd sem byggjast á miklu trausti.
Venja 5: Skilja fyrst, miðla síðan®
Hafðu áhrif á aðra með því að þróa með þér djúpan skilning á þörfum þeirra og viðhorfum.
Venja 6: Skapaðu samlegð®
Þróaðu nýjar og spennandi aðferðir sem hafa áhrif á fjölbreytileikann og fullnægja þörfum allra hagsmunaaðila.
Venja 7: Skerptu sögina®
Auktu helgun, orku og jafnvægi milli starfs- og einkalífs með því að gefa þér tíma til að huga að sjálfum/sjálfri þér.
Auktu árangur hjá einstaklingum og teymum
Einstaklingsárangur
7 venjur til árangurs er sannreynt kerfi sem stuðlar að bættum einstaklingsárangri. Þátttakendur ná auknum þroska, aukinni framleiðni og efla sjálfstjórn. Þeir munu ganga frá borði með getuna til að framkvæma mikilvægustu forgangsatriðin með auknum fókus og vandaðri skipulagningu.
Árangur teyma
7 venjur til árangurs stuðlar einnig að bættum árangri innan teyma. Þátttakendur auka helgun, starfsanda og samvinnu. Teymi munu ganga frá borði með aukna samskiptafærni og bætt sambönd.
Fyrirkomulag vinnustofu
12 milljón manns um allan heim hafa sögu að segja
Markhópur
Allir starfsmenn á öllum stigum vinnustaðarins. Margir vinnustaðir nýta þessa vinnustofu sem skyldunám nýliða (e. onboarding).
Tímalengd
Vinnustofa á vettvangi er samtals 16 eða 24 klst. Oft kennt á hálfum dögum. Stafrænar lotur eru 10 x 20 mínútur. 360° mat fyrir og eftir vinnustofu.
Innifalið
7 venjur til árangurs SIGNATURE — vönduð handbók og verkfæri þátttakenda. Stafrænn aðgangur að námsefni og ítarefni með áskrift að AllAccessPass. 360° rafrænt mat og ítarleg skýrsla fyrir þátttakendur og hópinn.
Sýn Coveys á árangursríkar aðferðir fyrir einstaklinga og liðsheildir er í senn áhugaverð og uppbyggjandi. 7 Venjur til árangurs fjallar um hagnýtar leiðir til að vaxa og dafna í nútíma þekkingarsamfélagi. Lesning sem nýtist öllum til aukins árangurs í lífi og starfi.“
Frí handbók
7 venjur til árangurs – öflugur lærdómur til persónulegrar forystu
Stafrænt fræðslusetur
All Access Pass®
AAP áskrift felur í sér aðgang að öllum námskeiðum og stafrænum örvinnustofum FranklinCovey á íslensku.
Hvernig þú getur hagnýtt aðferðir og verðlaunaefni FranklinCovey
Þetta námskeið er innifalið í All Access Pass® á vegum FranklinCovey. Sú áskrift veitir vinnustað þínum ótakmarkaðan aðgang að öllu okkar efni, hvar og hvenær sem er.
Stafræn vinnustofa
Kraftmikil fjarnámskeið með ykkar eða okkar þjálfurum.
Vinnustofa á vettvangi
Skemmtilegar og áhrifaríkar vinnustofur á vettvangi.
On Demand
Öflug stafræn þjálfun sem er aðgengileg fyrir fólkið þitt hvar sem er, hvenær sem er.