Sterk forysta í forgrunni á febrúarvinnustofu !


Í byrjun janúar hélt FranklinCovey á Íslandi einstaka kraftvinnustofu þar sem um 30 leiðtogar og áhrifafólk úr íslensku atvinnu- og menningarlífi komu saman til að hefja árið á öflugum grunni með 7 venjum til árangurs. Vinnustofan var haldin í fallegri umgjörð Vinnustofu Kjarvals og ríkti þar mikil orka, einlægni og metnaður fyrir persónulegum og faglegum vexti. Mikil aðsókn var í þennan frábæra viðburð og vegna fjölda áskorana þá endurtókum við leikinn núna í febrúar og buðum 30 leiðtogum til viðbótar að upplifa kraftinn og innblásturinn í 7 venjum til árangurs.

Dagurinn var bæði vel sóttur og einstaklega vel heppnaður. Þátttakendur tóku virkan þátt í umræðum, verkefnum og ígrundun og mynduðust dýrmæt samtöl um leiðtogafærni, sjálfsforystu, forgangsröðun og samvinnu – kjarnann í 7 venjum til árangurs.

Við hjá FranklinCovey viljum færa öllum þátttakendum innilegar þakkir fyrir traustið, orkuna og einlægnina sem þau færðu með sér inn í daginn. Hópurinn skapaði einstaka stemningu þar sem fólk studdi hvert annað, deildi reynslu og tók markviss skref í átt að meiri skýrleika og árangri.


7 venjur sem skapa raunverulegan árangur

7 venjur Stephen R. Covey hafa í áratugi verið einn öflugasti ramminn í heiminum fyrir persónulegan og faglegan árangur. Þær hjálpa fólki að byggja upp sjálfsaga, skýran fókus, traust, áhrifarík samskipti og raunverulegt samstarf. Á vinnustofunni fengu þátttakendur bæði djúpan skilning á venjunum og hagnýt verkfæri til að innleiða þær í daglegt líf og starf.

Endurgjöf þátttakenda sýnir vel hversu mikil áhrif vinnustofan hafði. Hér eru nokkur dæmi úr umsögnum:

Vinnustofan var alveg frábær, leiðbeinendurnir leiddu okkur áfram af öryggi og hlýju og höfðu mikla reynslu og þekkingu á efninu. Æfingarnar opnuðu augu mín fyrir mínum eigin krafti og ábyrgð. Við fengum frábær verkfæri til vinna með áfram.“

„Tíminn var vel nýttur, efnið var skýrt og vel uppsett.“

„Hagnýtt efni í lífi og starfi, sett saman á hnitmiðaðan hátt.“

„Frábært og insperandi námskeið, gott skipulag, frábærir leiðbeinendur og gott jafnvægi á milli hlustunar og æfinga.“

„Það er svo gott að koma á námskeið af þessu tagi til að minna sig á hvað skiptir máli í lífinu og setja sér ný markmið. Því öll viljum við bæta okkur í daglega lífinu og vera betri manneskjur.

„Frábær vinnustofa sem mun sitja eftir! Spennt að fara heim og halda vinnunni áfram.“


Opnar vinnustofur í Mars!

FranklinCovey býður upp á opnar vinnustofur í 7 venjum til árangurs í mars. Þar gefst einstaklingum og fyrirtækjum tækifæri til að taka þátt í þessari öflugu vegferð og byggja upp venjur sem skapa varanlegan árangur – bæði í starfi og einkalífi.

Við hlökkum til að halda áfram að styðja íslenskt atvinnulíf og leiðtoga í að skapa skýrari fókus, sterkari tengsl og meiri áhrif með 7 venjum til árangurs. Sjá nánari upplýsingar um opnu vinnustofurnar hér 7 venjur til árangurs – opnar vinnustofur 2026 – FranklinCovey