Nýttu þér eftirfarandi safn af góðum starfsvenjum til að byggja upp traust og hvetja teymi til að ná markmiðum.
Forysta á hraða trausts®
Menning trausts getur einungis dafnað þegar heiðarleiki er til staðar.
Traust er ekki eiginleiki sem þú annað hvort hefur eða ekki; traust er færni sem má læra. Í teymum og vinnustöðum þar sem mikið traust ríkir verður frammistaða mun betri en hjá þeim sem virkja ekki menningu trausts með sínum liðsmönnum.
Að þróa traust hjálpar liðsmönnum að vera orkumeiri og helgaðir starfi sínu. Þau uppskera árangursríkara samstarf, ljúka verkefnum fyrr og ná framúrskarandi árangri.
Kynntu þér Forystu á hraða trausts®
Traust kemur með æfingunni.
Það er ekki nóg að leysa flókin vandamál vinnustaða með pennastriki, ákvörðun stjórnar, einu námskeiði, endurskipulagningu eða kerfisbreytingum. Þessir þættir geta svo sannarlega verið gagnlegir, en í kjarna allra árangursríkra athafna er raunverulegt fólk sem sinnir raunverulegum verkefnum.
Hagfræði trausts
Traust hefur alltaf áhrif á tvær breytur: hraða og kostnað. Þegar traust minnkar, minnkar hraði og kostnaður hækkar. Þegar traust eykst, eykst hraði og kostnaður minnkar. Hagfræði trausts á vinnustöðum er sú að við borgum stöðugt falinn traustsskatt.
Vinnustaður getur til að mynda unnið samkvæmt framúrskarandi stefnu og sýnt fram á mikla hæfileika til að hrinda í framkvæmd stefnu, en traustskattur eða ávinningur trausts getur haft mikil áhrif á lokaniðurstöðuna. Þetta sýnir okkur skýrt raunverulegt virði trausts.
Hvernig traust virkar
Traust byggir á tveimur forsendum: karakters og hæfni. Karakter felur í sér heilindi þín, hvata og ásetning þinn gagnvart fólki. Hæfni hefur að gera með getu þína, færni og fyrri og núverandi árangur.
Með aukinni áherslu á siðferði í samfélagi okkar er sú hlið trausts sem snýr að karakter alltaf að verða verðmætari í öllum samskiptum. Hins vegar er hæfni — sú hlið trausts sem oft gleymist — alveg jafn mikilvæg.
61%
90%
3.6x
* Fleiri nýlegar rannsóknir um traust – hér.
Fyrirkomulag vinnustofu
Lausnin Forysta á hraða trausts getur haft varanleg áhrif á árangur vinnustaða með því að auka frammistöðu einstaklinga og teyma. Að skapa trausta og virka menningu er besta leiðin til að skapa samkeppnisforskot til frambúðar.
Markhópur
Námskeiðið hentar leiðtogum á öllum stigum vinnustaðarins.
Tímalengd
Vinnustofa á vettvangi er samtals 8 klst. Oft lóðsuð á 2 hálfum dögum. Stafrænar lotur eru 10 x 20 mínútur. 360° mat fyrir og eftir vinnustofu.
Innifalið
Vönduð vinnubók þátttakenda – á íslensku eða 20 öðrum tungumálum. Hraði trausts: Spilastokkur Vikulegar traustsstundir: Handbók leiðtoga Forysta á grunni trausts®: Bók Vettvangur vaxtar: Appið 360º mat
Frí handbók
6 leiðir til að byggja traust
Stafrænt fræðslusetur
All Access Pass®
AAP áskrift felur í sér aðgang að öllum lausnum FranklinCovey á íslensku.
Hvernig þú getur hagnýtt aðferðir og verðlaunaefni FranklinCovey
Þetta námskeið er innifalið í All Access Pass® á vegum FranklinCovey. Sú áskrift veitir vinnustað þínum ótakmarkaðan aðgang að öllu okkar efni, hvar og hvenær sem er.
Stafræn örvinnustofa
Öflug stafræn þjálfun sem er aðgengileg fyrir fólkið þitt hvar sem er, hvenær sem er.
Vinnustofa á vettvangi
Skemmtilegar og áhrifaríkar vinnustofur á vettvangi.
Fjarnám
Kraftmikil fjarnámskeið með ykkar eða okkar þjálfurum.