Snjallt traust®

Samkeppnisforskot á grunni trausts

Minnkaðu áhættu og auktu möguleika

Við lifum í heimi lítils trausts – umkringd krísum og áskorunum. Hverjum geturðu treyst? Hvernig geturðu lært að treysta?

Ef þú velur snjallt traust muntu geta starfað á grunni mikils trausts í óstöðugum viðskiptaheimi lítils trausts. Því óstöðugri sem hann verður, því meiri verður geta þín til að treysta. Hún verður samkeppnisforskot—og mun veita þér getuna til að nálgast óstöðugt umhverfi lítils trausts af öryggi.

Lausnin byggir á samnefndri bók Stephen M. R. Covey og Greg Link, Smart Trust, og mun námskeiðið hjálpa þér að skilja hvaða áhrif traust hefur á allt í kringum þig. Fólki sem er treyst er líklegra til að fá starf og stöðuhækkun, fá úthlutað stærri verkefnum og meira fjármagni, og er síðasta fólkið sem verður sagt upp. Í Snjöllu trausti, muntu kynnast fimm athöfnum trausts sem hjálpa þér að minnka áhættu á meðan þú eykur möguleika. Lausnin mun veita þér tólin til þess að skapa traust samskipti og sýna snjallt traust, sem hjálpar þér að ná árangri, hafa meiri orku og finna fyrir meiri ánægju, bæði persónulega og faglega.

Quote PNG

The first job of a leader—at work or at home—is to inspire trust. It’s to bring out the best in people by entrusting them with meaningful stewardships, and to create an environment in which high-trust interaction inspires creativity and possibility.

— Stephen M. R. Covey

Fyrirkomulag vinnustofu

Samkeppnisforskot með samstíga teymi

Markhópur

Námskeiðið hentar starfsmönnum á öllum stigum vinnustaðarins.

Tímalengd

Vinnustofa á vettvangi er samtals 16 klst. Oft kennt á 4 hálfum dögum. Stafrænar lotur eru 10 x 20 mínútur. 360° mat fyrir og eftir vinnustofu.

Innifalið

Vönduð vinnubók þátttakenda – á íslensku eða 20 öðrum tungumálum. Hraði trausts: Spilastokkur Vikulegar traustsstundir: Handbók leiðtoga Forysta á grunni trausts®: Bók Hraði trausts: Appið  360º mat

Upplýsingar um námskeið

Auktu möguleika þína

Þetta námskeið byggir á bókinni “Smart Trust” eftir Stephen M. R. Covey og Greg Link, og veitir þátttakendum tólin til þess að sýna snjallt traust, sem veitir þeim aukinn árangur, orku og ánægju – bæði persónulega og faglega.

Þátttakendur munu læra:

  • Hvernig á að treysta í heimi lítils trausts
  • Hvers vegna traust skiptir máli
  • Efnahagsáhrif mikils og lítils trausts
  • Fimm athafnir sem hjálpa þér að öðlast ávinning snjalls trausts.

Um hraðla (e. Excelerators):

Hraðlar eru stutt stafræn námskeið fyrir stjórnendur sem leitast eftir því að auka viðskipti og leiðtogafærni en geta ekki tekið sér frí frá vinnu. Hraðlar bjóða upp á handleiðslu með myndböndum, hreyfimyndum, gagnvirkum könnunum og matstólum ásamt handbókum á PDF formi og öðrum aðföngum. Hraðlar eru flestir um klukkustund að lengd og geta verið nýttir einir og sér eða með öðrum lausnum.

Frí handbók

10 samtöl til að byggja upp traust

Tól fyrir leiðtoga á öllum stigum vinnustaðarins.

Stafrænt fræðslusetur

All Access Pass®

AAP áskrift felur í sér aðgang að öllum lausnum FranklinCovey á íslensku.

Hvernig þú getur hagnýtt aðferðir og verðlaunaefni FranklinCovey

Þetta námskeið er innifalið í All Access Pass® á vegum FranklinCovey. Sú áskrift veitir vinnustað þínum ótakmarkaðan aðgang að öllu okkar efni, hvar og hvenær sem er.

Stafræn vinnustofa

Kraftmikil fjarnámskeið með ykkar eða okkar þjálfurum.

Vinnustofa á vettvangi

Skemmtilegar og áhrifaríkar vinnustofur á vettvangi.

Fjarnám

Öflug stafræn þjálfun sem er aðgengileg fyrir fólkið þitt hvar sem er, hvenær sem er.

Sögur viðskiptavina

Frito-Lay

Að auka traust til að fara fram úr væntingum

Í stað þess að verða fyrir fjárhagslegum skaða ákvað Frito-Lay að fara fram úr væntingum. Efnahagslægð, verðbólga og ófyrirsjáanleg veðurskilyrði ollu miklum verðhækkunum í birgðakeðju Frito-Lay. Þeir þurftu að breyta hratt viðskiptamódeli sínu. Forysta á grunni trausts® hafði undirbúið fyrirtækið með því að kynna til leiks nýtt sjónarhorn og færni til að stjórna á þessum ófyrirsjáanlegu tímum.

Borgin Provo

Að breyta menningu með trausti

Borgin Provo upplifði gríðarlegan vöxt og innstreymi í viðskiptum og fjárfestingum. Sjáðu hvernig borgin umbreytti menningu sinni og hélt jákvæðum meðbyr með Forystu á grunni trausts®.

Bifvélaiðnaður

Að hraða framúrskarandi árangri

Bílafyrirtæki, sem þegar er afkastamikið, þráir að leysa úr læðingi falda getu. Með aðstoð All Access Pass® á vegum FranklinCovey, sagði forstjórinn að teymið hafi skuldbundið sig framúrskarandi árangri og sé undirbúið undir framtíð aukinnar samkeppni á markaði