Stjórnaðu breytingum
Undirbúðu leiðtoga á þínum vinnustað undir breytingar.
Undirbúðu leiðtoga á þínum vinnustað undir breytingar.
Allir vinnustaðir ganga í gegnum breytingar. Viðbrögð leiðtoga við breytingum setja tóninn fyrir það hvernig teymi þeirra bregðast við. Frábærir leiðtogar hjálpa teymum sínum að dafna á umbreytingartímum með því að hjálpa þeim að skilja breytingaferlið og samstilla framtíðarsýn vinnustaðarins framhaldinu.
Þó að breytingar séu oft óreiðukenndar fylgja þær fyrirsjáanlegu mynstri sem hægt er að læra. Með réttum tólum geta leiðtogar og stjórnendur undirbúið liðsmenn undir breytingar, skapað trausta áætlun, aukið upplýsingaflæði milli liðsmanna og aukið samstillingu þvert á virkni – jafnvel á erfiðustu stigum breytinga.
Að leiða í gegnum breytingar krefst skipulagningar og æfingar. FranklinCovey sameinar efni sem byggir á lögmálum, sérfræðiráðgjöf og nýstárlegri tækni sem mun búa leiðtoga þína og stjórnendur að þeirri þekkingu sem þeir þurfa til að leiða teymi sín í gegnum breytingar af árangri og staðfestu.
Lykilþættir fyrir leiðtoga til að stjórna breytingum
Frábærir leiðtogar aðhyllast ekki bara breytingum með sveigjanlegu hugarfari. Þeir hafa líka samkennd þegar kemur að áhyggjum liðsmanna og hjálpa þeim að sjá hvernig breytingar skapa rými fyrir nýjar hugmyndir og nýsköpun.
Að stjórna breytingum
Byggir sannfærandi framtíðarsýn sem snýr að vexti og árangri teymisins í ljósi breytinga.Aðlögunarhæfni
Innleiðir venjur sem styðja við liðsmenn og hjálpa þeim að leggja sitt besta af mörkum og aðlagast breytingum.Frí handbók
6 leiðir til að hjálpa þínu teymi að takast á við streitu á tímum breytinga
í þessari handbók sýnum við þér sex leiðir sem þú getur nýtt til að hjálpa starfsfólki þínu að vinna úr þeim breytingum sem eiga sér stað og kortleggja árangursríka leið fram á við — þrátt fyrir umrót í lífi og vinnu.
Námskeið
Breytingastjórnun: Að breyta óvissu í tækifæri™
Þegar við áttum okkur á því að breytingar fylgja fyrirsjáanlegu mynstri, þá lærum við að stjórna viðbrögðum okkar og skilja hvernig við getum nálgast breytingar á hagnýtan og tilfinningalegan máta. Þetta virkir okkur til að greina stöðugt hvaða skref er best að taka næst—jafnvel á krefjandi tímum.
Máttur vegferðarinnar
Varanleg breyting á hegðun hefst innan frá — á því hver við erum og hvernig við sjáum heiminn sem yfirfærist á hvernig við virkjum og leiðum aðra. Vegferðir okkar sameina öflugt efni, teymi sérfræðinga, kraftmikinn vettvang og öfluga tækni sem hjálpar fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun.
Kynntu þér dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.