Að leiða teymi
Umbreyttu leiðtogahæfni á vinnustaðnum þínum
Umbreyttu leiðtogahæfni á vinnustaðnum þínum
Að leiða teymi er flókið og krefst jafnvægis. Leiðtogar þínir verða að skilgreina og móta stefnu, koma teymum sínum saman í tenglsum við verkefni og markmið vinnustaðarins og tryggja að réttu verkefnin séu unnin á réttum tíma. Þeir verða að leiðbeina liðsmönnum sínum, hjálpa þeim að leiða í gegnum áskoranir, efla sköpunargáfu og sækjast eftir tækifærum til vaxtar. Og þeir verða að skapa viðmið og ferli sem hjálpa öllum að leggja sitt einstaka framlag af mörkum.
Allir leiðtogar búa yfir einhverjum leiðtogahæfileika að eðlisfari og hafa aðra hæfileika sem þarf að rækta með viðbótarþjálfun og æfingu. FranklinCovey sameinar efni sem byggir á lögmálum, sérfræðiráðgjöf og nýstárlegri tækni mun hjálpa öllum leiðtogum að byggja upp árangursríkar venjur og þróa rétta blöndu af stefnumótandi hugsun, rekstrarhæfni og mannlegri færni.
Lykilhæfni til að leiða teymi til árangurs
Góðir leiðtogar vita hvernig á að skapa stefnu, umbuna nýsköpun, leiðbeina teymum sínum, efla heilbrigða menningu og vinna á áhrifaríkan hátt.
Að hafa hugarfar leiðtoga
Nær árangri með og í gegnum aðraAð nýta markþjálfun
Hlustar vel og spyr innihaldsríkra spurninga í samskiptum við liðsmennAð halda 1&1
Heldur reglulega árangursríka 1&1 fundi til að hvetja liðsmenn áframAð stjórna fundum
Leiðir árangursríka og skilvirka fundiAð þiggja og veita endurgjöf
Leysir árangur og getu úr læðingi með því að veita liðsmönnum hjálplega, tímanlega og nákvæma endurgjöfAð þróa liðsmenningu
Keyri áfram og viðheldur góðri liðsmenningu með ábendingum frá teyminu sínuAð nýta samstarf í gegnum fjarvinnu
Skapar árangursríka samvinnu og samskipti þrátt fyrir fjarvinnuAð virkja nýsköpun
Hvetur teymið sitt til að deila sínu einstaka sjónarmiði þegar kemur að áskorunum og verkefnumFrí handbók
Að miðla upplýsingum um breytingar
Það hvernig þú tjáir þig um breytingar við liðsmenn hefur mikil áhrif á skilning þeirra og getu til aðlögunar. Allar breytingar fela í sér röskun en stjórnendur geta lágmarkað þessi áhrif með árangursríkum samskiptum.
Námskeið
6 lykilfærniþættir leiðtoga™
Þetta námskeið er safn hagnýtra og mikilvægra aðfanga sem veita leiðtogum hugarfarið, færnina og tólin til þess að ná framúrskarandi árangri í leiðtogahlutverkum sínum.
Máttur vegferðarinnar
Varanleg breyting á hegðun hefst innan frá — á því hver við erum og hvernig við sjáum heiminn sem yfirfærist á hvernig við virkjum og leiðum aðra. Vegferðir okkar sameina öflugt efni, teymi sérfræðinga, kraftmikinn vettvang og öfluga tækni sem hjálpar fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun.
Kynntu þér dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.