Stjórnaðu breytingum

Aðstoðaðu fólk og teymi að þróa hugarfar og hæfni til að takast á við breytingar.

Valdefldu einstaklinga til að takast á við breytingar

Allir vinnustaðir ganga í gegnum tímabil breytinga. Hvort sem breytingar eiga sér stað sem hluti af fyrirbyggjandi stefnu vinnustaðarins eða til að bregðast við ytri öflum, þá er eitt víst: Að vita hvernig á að takast á við breytingar er grunnurinn að velgengni hvers og eins.

Þegar vinnustaðir standa frammi fyrir breytingum einblína margir eingöngu á ferlana. Þó ferlarnir séu mikilvægir, þá er það fólkið þitt sem knýr fram breytingar. Með réttri aðferðafræði geta starfsmenn byggt upp sjálfstraust sitt til að nálgast skipulagsbreytingar af seiglu. Þegar þeir hafa lært um fyrirsjáanlegt mynstur breytinga geta þeir nálgast óvissu og umbreytt henni í tækifæri fyrir persónulegan vöxt.

FranklinCovey sameinar efni sem byggir á lögmálum, sérfræðiráðgjöf og nýstárlegri tækni sem mun hjálpa einstaklingum með þau úrræði sem þarf til að takast á við breytingar á vinnustaðnum.

Lykilhæfni til að takast á við breytingar

Sveiganleiki og opinn hugur er hæfni sem allir liðsmenn þurfa til að takast á við breytingar.

Aðlögunarhæfni

Innleiðir árangursríkar venjur sem hvetja fólk til að gera sitt besta og laga sig að breytingum

Frí handbók

5 markþjálfunarspurningar fyrir þig

Eftirfarandi spurningar eru hannaðar til að hjálpa þér að greina núverandi nálgun þína þegar kemur að breytingum og tileinka þér árangursríkt hugarfar sem gerir þér kleift að blómstra við nýjar aðstæður.

Námskeið

Breytingastjórnun: Að breyta óvissu í tækifæri™

Þó sérhver breyting sé einstök, á sama fyrirsjáanlega mynstrið við þær allar. Með því að kunna að greina þetta mynstur og rækta færnina til að takast á við breytingar á árangursríkan hátt er auðveldara fyrir okkur að greina hvernig við hyggjumst halda áfram—jafnvel á krefjandi tímum.

Máttur vegferðarinnar

Varanleg breyting á hegðun hefst innan frá — á því hver við erum og hvernig við sjáum heiminn sem yfirfærist á hvernig við virkjum og leiðum aðra. Vegferðir okkar sameina öflugt efni, teymi sérfræðinga, kraftmikinn vettvang og öfluga tækni sem hjálpar fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun.

Kynntu þér dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.

Nálgastu breytingar á árangursríkan hátt

  • 01 Stafræn vinnustofa

    Leiddu sjálfa(n) þig í gegnum breytingar

    Breytingar eru alls staðar og þær gerast hraðar en nokkru sinni fyrr – þessi lota mun hjálpa þér að læra að skilja breytingar og taka þátt í þeim á skilvirkari hátt bæði í lífi og starfi.

    Lengd: 120 mín

  • 02 10 mínútna verkefni

    Skoðaðu þína eigin nálgun þegar kemur að breytingum

    Finnst þér breytingar óumflýjanlegar? Stressandi? Spennandi? Eitthvað sem þú getur orðið betri í? Taktu þetta sjálfsmat til að læra meira um viðhorf þín, viðbrögð og hegðun.

    Lengd: 10 mín

  • 03 Jhana

    Þegar breytingar hlaðast upp

    Hvað getur þú gert þegar vinnustaðabreytingar verða sífellt fleiri? Meira en þú heldur!

    Lengd: 5 mín

  • 04 Myndband

    3 spurningar til að tendra nýsköpun eftir breytingar

    Allir breytingar skapar nýtt landslag möguleika. Ráðgjafi FranklinCovey, Marché Barney, deilir því hvernig má koma auga á og nýta þessi tækifæri.

    Lengd: 3 mín

  • 05 Lausn

    Venja 1: Vertu virkur®

    Allt áreiti í heiminum í kringum þig kveikir í viðbrögðum hjá þér. En það skapast rými milli áreitis og viðbragðs þar sem þú getur valið viðbrögð þín og ákveðið að vera virk(ur).

    Lengd: 30-60 mín

  • 06 Innsýn

    Stóru steinarnir

    Að koma öllu fyrir í deginum getur verið krefjandi, en það verður mun auðveldara ef þú einblínir bara á það mikilvæga (stóru steinana).

    Lengd: 10 mín