Gott fólk með Guðrúnu Högna | Einar Sveinbjörnsson
Við kynnum með stolti nýtt hlaðvarp á vegum FranklinCovey – Gott fólk með Guðrúnu Högna. Þar fær Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey á Íslandi, til sín vel valda gesti úr atvinnulífinu og ræðir um ýmis málefni. Guðrún tekur innihaldsríkt samtal við reynda leiðtoga sem varpar ljósi á öfluga stjórnun, vaxandi vinnustaði, bestu ráð, góðar sögur, hagnýtar lexíur, og bara lífsins speki valdra viðmælenda.
Einar Sveinbjörnsson rekur Veðurvaktina, sem býður up á veðurþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í ráðgjöf og úrvinnslu flestu því sem viðkemur veðri og veðurfari.
Einar er stofnandi Bliku og hefur um árabil frætt landsmenn og gesti okkar um veður og veðurfar.
Eftir 16 ára starf hjá Veðurstofunni fór hann í eigin rekstur og er með afar skemmtilega innsýn í svokallað Giggumhverfi og samfélagslega ábyrgð.
Hvernig stjórnar þú þínu innra veðri og virkjar vinda deliihagkerfisins?
Þáttinn má finna á Spotify eða með því að fylgja hlekknum hér að neðan:
Fleira sem þú gætir haft áhuga á
Frítt fagefni
Hagnýtar handbækur
Sæktu fjölda handbóka og verkfæra um veruleika vaxandi fólks og vinnustaða.
Færni og frammistaða
Forsenda framfara
Við látum okkur varða grunnfærni starfsfólks á þekkingaröld. Uppgötvaðu hvernig við eflum fólk og vinnustaði til aukins árangurs með því að rækta þekkingu, kunnáttu, viðhorf og færni sem er forsenda framfara í íslensku atvinnulífi
Stafrænt fræðslusetur
Leiðtoga Akademían
Einstaklingsmiðað stjórnendanám fyrir leiðtoga á öllum stigum.
Einstaklingsmiðað stjórnendanám fyrir leiðtoga á öllum stigum.
Hlaðvarp
Gott fólk með Guðrúnu Högna
Spjall við öfluga leiðtoga í íslensku samfélagi.