Stefnumótandi forysta

Þróaðu leiðtoga sem geta miðlað stefnu sem skapa vegferð árangurs.

Þróaðu leiðtoga sem hjálpa teymum að ná stöðugum árangri

Framúrskarandi leiðtogar safna ekki bara teymum sínum í kringum lykilviðskiptaáætlanir – þeir skara líka fram úr í að breyta þessum aðferðum í áþreifanlega aðgerðaáætlun. Þó að margir leiðtogar séu hæfileikaríkir í að hugsa stórt, eiga sumir í erfiðleikum með að breyta framtíðarsýn í endurtekin framkvæmdarkerfi.

Lykillinn að stöðugri framkvæmd stefnu er ferli. Leiðtogar þurfa að setja sér skýrar væntingar varðandi frammistöðu sem skilgreina hvaða athafnir og hegðun er æskileg og hver þeirra skapar áhættu fyrir vinnustaðinn. Leiðtogar þurfa að búa til ábyrgðarráðstafanir sem hjálpa teymum þeirra að ná settum markmiðum. Það gerist þegar þeir fjárfesta í réttum verkfærum, úrræðum og umgjörðum svo teymi þeirra geti skilað hágæða vinnu á áætlun.

Að þróa framkvæmdahæfileika leiðtoga þinna getur hjálpað fyrirtækinu þínu að þróast frá frábærum hugmyndum yfir í frábæran árangur. Efni FranklinCovey og margsannað framkvæmdakerfi mun styrkja leiðtoga þína til að skilgreina markmið og veita teymum þeirra þau tól sem þau þurfa til að framkvæma stefnu vinnustaðarins.

Lykilhæfni til að fræmkvæma stefnu

Leiðtogar geta náð varanlegum árangri með því að breyta aðferðum á háu stigi í áþreifanleg markmið og þróa ferla, ábyrgð og hvata sem hjálpa fólki að ná settum markmiðum.

Að setja teymismarkmið

Tengir stefnu vinnustaðarins við raunhæf og krefjandi markmið fyrir bæði teymið og einstaklinga

Að ná markmiðum teymisins

Ákvarðar hvata og mælikvarða til að hvetja lið til að ná lykilmarkmiðum

Námskeið

4 lykilhlutverk leiðtoga®

Jafnvel á erfiðum stundum eru fjögur lykilhlutverk sem leiðtogar geta stigið inn í og leggja grunninn að árangursríkri forystu.

Frí handbók

4 skref til að skerpa á og hrinda í framkvæmd markmiðum

Ef þú notar þessa formúlu til að tala um markmið markmið með skilmerkilegri og mælanlegri hætti þá verður auðveldara að skilja og miðla markmiðum.

Námskeið

Breytingastjórnun: Að breyta óvissu í tækifæri™

Þegar við áttum okkur á því að breytingar fylgja fyrirsjáanlegu mynstri, þá lærum við að stjórna viðbrögðum okkar og skilja hvernig við getum nálgast breytingar á hagnýtan og tilfinningalegan máta. Þetta virkir okkur til að greina stöðugt hvaða skref væri best að taka næst—jafnvel á krefjandi tímum.

Námskeið

4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu®

4DX er aðferðafræði sem veitir vinnustöðum, sem leitast eftir því að efla framkvæmd stefnu, tól til þess að ná markmiðum sínum.

Sögur viðskiptavina

Whirlpool

Auka söluárangur til muna

Whirlpool leitaði að sönnuðu ferli til að auka framleiðni söludeildar sinnar. Sjáðu hvernig 4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu® hjálpaði Whirlpool að þrengja fókusinn á sölu og marktækar aðgerðir – og tókst þannig að auka sölu sína um $5.7M á fyrstu 90 dögunum.

Alamo háskólinn

Að auka helgun nemenda

Alamo háskólinn einblíndi á að halda nemendum í námi og halda þeim helguðum þegar kom að því að sinna náminu. Sjáðu hvernig skólanum tókst að auka gráðufjölda um 17% á 8 mánuðum, og tókst þannig að framkvæma mikilvægasta markmiðið, og langt umfram það.

Dekalb læknastöðin

Að auka ánægju sjúklinga

Dekalb læknastöðin notaði 4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu® til að ná framúrskarandi árangri með hliðsjón af ánægju sjúklinga. Sjáðu hvernig Dekalb fór úr því að tilheyra 3. prósentustigi í að vera hluti af 99. prósentustigi í frammistöðu.

Marriott

Að ná besta árangrinum

Fáar iðnaðargreinar urðu fyrir jafn miklu tekjutapi og hótelrekstur á þessum óvissutímum. Sjáðu hvernig Marriott gat helgað starfsmenn sína að mikilvægustu markmiðunum, jafnvel í miðjum heimsfaraldri.

Máttur vegferðarinnar

Varanleg breyting á hegðun hefst innan frá — á því hver við erum og hvernig við sjáum heiminn sem yfirfærist á hvernig við virkjum og leiðum aðra. Vegferðir okkar sameina öflugt efni, teymi sérfræðinga, kraftmikinn vettvang og öfluga tækni sem hjálpar fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun.

Kynntu þér dæmi um öflugar lærdómsvegferðir hér að neðan.

Samræmdu teymi þín og ferla til að ná árangri

  • 01 Lausn

    Samstilltu hin sex réttu

    Til að mæta þörfum nýs umhverfis verða leiðtogar að ákveða hvernig þeir munu framkvæma stöðugt með því að samstilla sex lykilkerfi: Fólk, skipulag, umbun, aðföng, ákvarðanir og ferla.

    Lengd: 30-60 mín

     

  • 02 Jhana

    Að stjórna umbótaferli frá stefnumótandi breytingum

    Hjálpaðu stjórnendum að læra að bæta ferla þegar þeir bregðast við stefnumótandi vinnustaðabreytingum.

    Lengd: 20 mín

     

  • 03 Jhana

    Hvernig á að leiða teymi til að ná markmiði.

    Fylgdu þessum ráðum til að hjálpa þér að gefa teyminu þínu forskot til að ná markmiðum sínum, sama hvaða hindranir koma upp.

    Lengd: 15 mín

  • 04 Innsýn

    Barrátta sem þarf að leysa

    Horfðu á þetta myndband um nýsköpun: hvernig nýsköpun er sprottin af baráttu, hvernig við erum öll frumkvöðlar og hvernig tækifæri til nýsköpunar eru allt í kringum okkur.

    Lengd: 15 mín

  • 05 Whitepaper

    Framkvæmd í óvissu og margbreytileika

    Metsöluhöfundurinn og stefnumótunarsérfræðingurinn Chris McChesney útlistar hvernig 4 grunnstoðir til innleiðingar stefnu® geta hjálpað leiðtogum að ná árangri, jafnvel á óvissu tímum.

    Lengd: 30 mín