4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu®
Einföld, endurtakanleg formúla til að ná að framkvæma mikilvægustu forgangsatriði vinnustaðarins.
Á hverju ári verja vinnustaðir meira 30 milljörðum dollara í mótun stefnu—og meira en 80% mistekst. 4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu® er aðferðafræði FranklinCovey sem veitir vinnustöðum, sem leitast eftir því að efla framkvæmd stefnu, viðeigandi tól til þess að ná markmiðum með því að skapa menningu framúrskarandi frammistöðu.
4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu í stuttu máli
Grunnstoð 1: Leggðu áherslu á það allra mikilvægasta
Grunnstoð 1 varðar fókus. Framúrskarandi framkvæmd stefnu hefst á því að þrengja fókusinn—greina skýrt hvað er í forgangi. Annars skiptir ekkert sem þú afrekar máli.
Grunnstoð 2: Einblíndu á LEAD mælikvarða
Grunnstoð 2 varðar vogarafl. 80% árangurs þíns kemur vegna 20% athafna þinna; ert þú að einblína á réttu athafnirnar? Grunnstoð 2 byggir á því lögmáli að ekki allar athafnir séu jafnar. Greindu þær athafnir sem skipta mestu máli.
Grunnstoð 3: Haltu sannfærandi skortöflu
Þetta er grunnstoð helgunar. Fólk og teymi spila leikinn öðruvísi þegar haldið er utan um stigin, og réttu skortöflurnar hvetja fólk alla leið til sigurs.
Grunnstoð 4: Skapaðu takt ábyrgðar
Þetta er grunnstoð ábyrgðar. Hún snýst um að beina athygli og orku að hegðun og aðgerðum sem leiða af sér eða spá fyrir um að þú náir mikilvægasta markmiðinu.
Fyrirkomulag vinnustofu
Fókus, agi og leikgleði – samstíga og í takt við stefnu
Markhópur
Efra lag stjórnenda sem standa fyrir stefnumótun á vinnustöðum.
Tímalengd
Vinnustofa á vettvangi er samtals 16 klst. Oft kennt á 4 hálfum dögum. Stafrænar lotur eru 9 x 20 mínútur.
Innifalið
4DX — vönduð handbók og verkfæri þátttakenda á íslensku eða 20 öðrum tungumálum. Stafrænn aðgangur að námsefni og ítarefni með áskrift að AllAccessPass.
Frí handbók
4 skref til að skerpa á og hrinda í framkvæmd markmiðum
Einföld formúla, úr 4DX grunnstoðum við framkvæmd stefnu veitir þér öfluga leið til að skilgreina markmið.
Frí handbók
7 leiðir til að vera virkari stjórnandi
Nýttu tímalausa nálgun metsölubókarinnar 7 venjur til árangurs til að auka áhrif og árangur þinn sem leiðtogi.
Að innleiða 4 grunnstoðir við framkvæmd stefnu® á þinn vinnustað
4DX® innleiðing
Meira en 4,000 verkefni með viðskiptavinum og sannreyndum nálgunum í öllum atvinnugreinum. Lærðu að innleiða 4DX stýrikerfið á þínum vinnustað
Samstilling stefnu
Ein af stærstu hindrunum að framúrskarandi niðurstöðum á öllum vinnustöðum er stöðugur óstöðugleiki. Lærðu hvernig þú getur virkjað FranklinCovey til að hjálpa þér að skerpa á stefnu vinnustaðarins þíns.
4DX forrit og tól
Viðskiptavinir nýta 4DX® OS til að rekja skuldbindingar og nýta vikulega ábyrgðarfundi til að tryggja að þeir séu á réttri vegferð að framúrskarandi árangri.
4DX mælingarkerfi
Hvernig þú getur mælt þá orku og helgun sem fer í mikilvægustu markmiðin og hvernig teymi þróast að þessum markmiðum.
Framkvæmd stefnu: Markþjálfun
FranklinCovey býður upp á markþjálfunarþjónustu á heimsmælikvarða sem hjálpar vinnustaðnum þínum að framkvæma mikilvægustu markmiðin.
Helgun í samskiptum
Sérfræðingar okkar í grunnstoðunum 4 fara yfir ýmis umræðuefni, þar á meðal framkvæmd á mikilvægustu markmiðunum, umsvifamiklar breytingar á vinnustað, umbreytingu á sölu og fleira. Bókaðu sérsniðinn fyrirlestur hjá okkur í dag.