Auðbjörg og Vilborg Arna ganga til liðs við FranklinCovey

Auðbjörg og Vilborg Arna ganga til liðs við FranklinCovey
FranklinCovey hefur borist öflugur liðsauki en þær Auðbjörg Ólafsdóttir og Vilborg Arna Gissurardóttur hafa bæst í raðir FranklinCovey á Íslandi sem ráðgjafar og leiðtogar vaxtar og árangurs.
FranklinCovey er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði þjálfunar, ráðgjafar og rannsókna á árangri einstaklinga, liðsheilda og vinnustaða. Félagið á meira en 30 ára farsæla sögu og er skráð í Kauphöllina í New York. FranklinCovey á Íslandi hefur þjónað árangri á fjórða hundrað íslenskra vinnustaða með vönduðum lausnum og þjálfun.
Auðbjörg Ólafsdóttir tekur við hlutverki ráðgjafa og leiðtoga vaxtar (e. Senior growth partner). Auðbjörg er með víðtæka alþjóðlega reynslu á sviði stjórnunar, samskipta, mannauðsmála og leiðtogaþjálfunar. Hún starfaði sem yfirmaður fyrirtækjamenningar og samskipta hjá Controlant á árunum 2021 til 2024 og leiddi þar málaflokka sjálfbærni, samskipta, fræðslu og menningar á tímabili mikils vaxtar og breytinga. Þar á undan starfaði Auðbjörg um átta ára skeið sem samskiptastjóri Marel þar sem hún leiddi fjárfestatengsl ásamt innri og ytri samskiptum félagsins á alþjóðavísu.
Auðbjörg hefur einnig starfað sem hagfræðingur hjá Íslandsbanka, fyrir Fastanefnd Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins bæði í Osló og í Reykjavík og sem blaðamaður og fréttastjóri hjá Reuters og Viðskiptablaðinu. Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá Curtin University í Ástralíu, auk þess að vera markþjálfi og með kennsluréttindi. Samhliða störfum sínum hjá FranklinCovey starfar Auðbjörg sem ráðgjafi í samskiptum, stjórnendamarkþjálfi og uppistandari.
Vilborg Arna Gissurardóttir tekur við sem ráðgjafi og leiðtogi í árangri viðskiptavina (e. Implementation strategist). Vilborg hefur víðtæka reynslu af ferðaþjónustu, byggðaþróun, markaðsmálum og sem ráðgjafi og hvatningarfyrirlesari. Vilborg hefur undanfarin ár verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi, rekið ferðaskrifstofu auk þess að eiga að baki feril sem fjalla- og ævintýrakona. Hún er með MCM gráðu frá Háskólanum á Bifröst í Neyðar- og Áfallastjórnun, MBA gráðu frá Háskóla Íslands og BA gráðu í ferðamálafræði frá sama skóla. Auk þess er hún markþjálfi og hefur lokið kúrsum við erlenda háskóla á sviði sjálfbærni. Samhliða störfum sínum hjá FranklinCovey starfar Vilborg sem ráðgjafi á sviði áhættugreiningar og seiglu fyrir sveitarfélög og fyrirtæki.
„Auðbjörg og Vilborg eru mikill fengur fyrir FranklinCovey. Þær munu styðja við vegferð okkar að hjálpa fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum að ná hámarksárangri og byggja upp menningu árangurs og velgengni,“ segir Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey á Íslandi.
“Ég er gríðarlega spennt fyrir vegferðinni framundan. Ég þekki af eigin raun hversu áhrifamikið efni og aðferðir FranklinCovey reynast við að byggja upp menningu samstarfs og árangurs þegar ég kenndi efnið sem innri þjálfari bæði hjá Marel og Controlant þegar ég starfaði þar.Ég hlakka til að hjálpa öðrum að nýta þau tæki og tól sem verkfærakista FranklinCovey hefur upp á að bjóða til að skapa sameiginlegt tungumál trausts og árangurs ” segir Auðbjörg Ólafsdóttir