Vinnustofa um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri 9. og 10. ágúst nk.

FranklinCovey á Íslandi býður stjórnendum í opinberri þjónustu að sækja áhrifamikla vinnustofu um leiðtogafærni þann 9. og 10. ágúst næstkomandi. 
Um er að ræða nýja tveggja daga vinnustofu með einstökum ráðgjafa FranklinCovey og prófessor við Vanderbilt háskólann: Dr. Patrick Leddin. Patrick
býr yfir mikilli reynslu af vinnu með stjórnendateymum í opinberum rekstri um allan heim og er höfundur bókarinnar “Building a Winning Culture in
Government”, sem kom út í maí.

Vinnustofa FranklinCovey – The 4 Essential Roles of Leaders –
er sniðin að viðfangsefnum milli- og æðri stjórnenda (t.d. skrifstofustjóra, sviðsstjóra, deildarstjóra, forstöðumanna, framkvæmdastjóra, forstjóra, ráðuneytisstjóra ofl.).  Námsefnið er í senn áhrifamikið, hagnýtt og skemmtilegt – og vinnustofan er afrakstur umfangsmikla rannsókna á lykilfærniþáttum stjórnenda á þekkingaröld.

Dr. Patrick Leddin er tvímælalaust einn af fremstu ráðgjöfum FranklinCovey með sérhæfingu í opinberum rekstri.  Hann er prófessor við Vanderbilt háskólann þar sem hann sérhæfir sig í stefnumótun, leiðtogafræðum og breytingastjórnun.  Patrick átti farsælan feril í bandaríska hernum þar sem hann hóf ferilinn sem fallhlífarhermaður í sérsveitunum og vann sig upp í stjórnunarstöðu.  Hann starfaði síðan hjá KPMG sem ráðgjafi og stofnaði síðan eigin ráðgjafafyrirtæki sem hann seldi þegar hann sneri sér að kennslu.  Hann býr yfir mikilli reynslu af vinnu með stjórnendateymum í opinberum rekstri og hefur unnið með stjórnendum í Bandaríkjunum og Kanada, víðs vegar Asíu og í mörgum Evrópulöndum. Hann er höfundur bókarinnar “Building a Winning Culture in Government”, sem kom út í maí 2018.

Tími:  Fimmtudaginn 9. ágúst – 8:30 til 16:00
Föstudaginn 10. ágúst – 8:30 til 16:00
Staður: Rúgbrauðsgerðin, Borgartúni 6
Verð:  140.000 IKR
Innifalið í verði eru öll námskeiðsgögn: 360°mat, vinnustofa, handbók stjórnenda, leiðbeiningar við innleiðingu, spilastokkur með lykilfærniþáttum, rafræn eftirfylgni ofl.

Nánari upplýsingar hjá Þóru Sif í síma 775 7077 eða á thora@franklincovey.is

​​​