
„Ég setti mér ný markmið eftir lestur bókarinnar. Það er gott að hafa markmið en það sem er enn mikilvægara er að vita hvernig maður ætlar að komast þangað og þá sýn fékk ég eftir mjög gott námskeið í 7 venjum til árangurs. Takk fyrir mig!“

„Einföld og hagnýt yfirferð á lykilatriðum til árangurs. Ég hef stuðst við efni bókarinnar í lífi og starfi frá fyrsta degi eftir að hafa lesið hana, gríp oft til hennar fyrir innblástur og mæli með henni í hvívetna við hvern þann sem vill hafa áhrif og skara framúr.“

Færir heilu hópana á flug í markmiðasetningu. Ávinningurinn er ótvíræður, ekki aðeins í þvi að ná settu markmiði heldur einnig í liðsvinnu, samheldni, upplýsingaflæði og bara almennri stemningu.

Teymi FranklinCovey á Íslandi hefur stutt okkur með þjálfun sem tekur mið af gildum fyrirtækisins almennt og þeim sértæku áskorunum sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni. Sjö venjur til árangur hafa persónulega verið mér ómetanlegt veganesti bæði í einkalífi og í starfi.

„Bókin um venjurnar 7 er ein mest selda viðskiptabók allra tíma og ein áhrifamesta bók sem notuð hefur verið í leiðtogaþjálfun um allan heim. Hún fjallar um miklu meira en bara viðskipti og þjálfun leiðtoga. Hún fjallar um bestun í persónulegri hegðun til að hámarka árangur í hverju því sem menn takast á hendur, hvort heldur er í vinnu eða einkalífi. Það geta allir látið sig dreyma en bókin hjálpar fólki til að gera drauma að veruleika með því að setja sér metnaðarfull markmið og ná þeim með skipulögðum hætti. Þessi bók ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum á Íslandi.“

„Tímalaus sýn Coveys á árangur einstaklinga í einkalífi og á vinnustað á svo sannarlega við í dag. Bók hans varpar ljósi á klassíska nálgun til að bæta verulega árangur í lífi og starfi, og hann kryddar framsetninguna með skemmtilegum dæmisögum, áhrifaríkum og hagnýtum aðferðum.“

Það getur verið vandasamt að velja efni til að efla bæði reynslumikla og reynslulitla stjórnendur. Ég tók rétta ákvörðun þegar ég valdi Franklin Covey á Íslandi (FC) sem samstarfsaðila Eimskips til að efla stjórnendahópinn. Leiðbeinendur eru reynslumiklir og efnið frá þeim er í senn skiljanlegt í framsetningu, skemmtilegt og með augljósa tengingu við fjölbreytt viðfangsefni stjórnenda. Efni frá FC hefur sannað sig yfir langan tíma sem sterkur grunnur stjórnunar. Það eru mikil verðmæti fólgin í sterkum grunni.

“Bókin 7 venjur til árangurs er ein af þeim bókum sem að liggja reglulega á náttborðinu mínu. Sígildur og áhrifamikill boðskapur bókarinnar hefur hjálpað mér að ná árangri í starfi og ekki síður verið mér mikil hvatning í persónulegu lífi.”

„Í gegnum lífið áttu nokkur „AHA-augnablik“ en 7 Venjur til árangurs er eitt stærsta „AHA-augnablik“ sem ég hef átt. Persónulegur vöxtur og skilningur minn á sjálfum mér hefur gefið mér ótrúlegt sjálfstraust og styrk. Ég get ekki beðið eftir að færa samstarfsmönnum mínum hjá Securitas þessa gjöf sem Venjurnar 7 eru.“

„Covey kom auga á þær forsendur frammistöðu sem hafa varðað vöxt okkar – jákvæðni, áreiðanleika, hagkvæmni og framsækni. Vinnustofa stjórnenda í 7 venjum ræktaði enn frekar jarðveg árangurs hjá Ölgerðinni.“

„Nálgun Coveys um grunnþætti árangurs í lífi og starfi er í senn tímalaus og mjög svo tímanleg. Vinnustofa 7 venja til árangurs færði stjórnendateymi Kópavogsbæjar ný viðhorf, færni og aðferðir til að efla okkur enn frekar í að þjóna spennandi verkefnum sveitafélagsins.“

Traust er grundvöllurinn fyrir því að allt gangi, grundvöllurinn að samheldnu árangursríku teymi. Allir sem hafa áhuga á að ná árangri ættu að fara í gegnum þetta efni.

,,Það er einfaldara og betra fyrir fólk í lífinu að nota venjurnar 7. Uppáhaldsvenjan mín er ,,ræktaðu sjálfan þig“ af því að hún snýst um að manni þurfi að líða vel í líkamanum og hjartanu til að hafa það gott og ganga vel í lífinu“.
„Ein af þeim bókum sem hittir í mark og nær um leið tengingu við lesandann með sýnilegum og áþreifanlegum hætti. Venjurnar sjö hafa haft með mjög árangursríkum hætti áhrif á mig sem einstakling sem og leiðtogahæfni mína. 7 Venjur er leiðarvísir í þá átt að laða fram það allra besta í hverjum einstaklingi sem er mikil verðmæti fyrir samfélagið jafnt sem skipulagsheildina.“

Hittir í mark bæði hjá reynslumiklum og reynslulitlum stjórnendum. Gefur stjórnandanum verkfæri sem auðvelt er að grípa til við ólíkar aðstæður. Setur hlutina í samhengi og höfðar til manneskjunnar sjálfrar og hennar eigin ábyrgð á árangri.

„FranklinCovey notar skilvirka aðferðafræði sem fær allan hópinn til að taka virkan þátt við að gera vinnustaðinn sinn betri til framtíðar.“

„Ég mæli eindregið með því mikla framboði námsefnis fyrir stjórnendur og starfsmenn sem Franklyn Covey hefur uppá að bjóða. Þar er að finna faglegt efni sem sett er fram á aðgengilegan hátt og hef ég góða sögu að segja af reynslu minni bæði við að sitja sjálf námskeið sem og af þeim starfsmönnum sem hafa setið námskeiðin. Guðrún Högnadóttir er frábær leiðbeinandi og kemur efninu frá sér á lifandi og fræðandi hátt, netnámskeiðin eru frábær viðbót og eru vönduð og hnitmiðuð“

„Í grunninn byggir leiðtogaverkefnið upp skilning og færni til að geta borið ábyrgð á eigin ákvörðunum og þannig mótað líf sitt til hins betra ásamt því að þroska samskiptahæfni barna og kennara. Flestir kennarar Klettaborgar hafa farið á námskeið í venjunum 7 og telja sig hafa haft mikið gagn af hugmyndafræðinni bæði í leik og starfi. Foreldrar hafa lýst ánægju sinni með starfið og fá reglulega kynningu á venjunum í vikulegum fréttaskotum, með vissu er hægt að segja að leiðtogaverkefnið hafi haft mjög jákvæð áhrif á skólasamfélagið í heild.“

„Efni Leiðtogans í mér getur stutt við alla þessa þætti og við gátum tengt það við þá hugmyndafræði sem fyrir var í leikskólanum. Við notum hugmyndafræðina og þar með venjurnar á þann hátt að við reynum að láta það hafa áhrif á vinnuaðferðir, viðmót og það hvernig við byggjum upp „andann í húsinu.“

„Það eru stórar lexíur í þessari bók. Öflug verkfæri sem geta flutt fjöll úr stað. Í mínu tilfelli kenndi þessi bók mér að spyrja: Hvað er mér raunverulega mikilvægt? Og hvað er bara áríðandi?“

„Ég las þessa 7 Venjur til árangurs á fyrstu árunum í atvinnumennskunni í handbolta og var allan minn feril að reyna að temja mér innihald hennar.“

„Lestur bókarinnar og þjálfun starfsmanna okkar er verulega til gagns. Í raun snýst þetta um heilbrigða skynsemi og öguð vinnubrögð, forgangsröðun og skipulag. Og þar sem „common sense is not so common“ veitir þetta mjög gagnlegt aðhald og áminningu um hvernig best er að haga verkum. Það er í raun ekki hægt að gleyma leiðbeiningunum, bara að rifja upp að til eru 7 venjur og þá fylgir allt hitt með.“

„Rétt eins og Newton færði okkur aukinn skilning á þyngdarlögmálinu þá hefur Covey fært okkur skilning á þeim lögmálum sem liggja að baki velgengni í lífi og starfi. Flóknara er það ekki.“

„Ef við þróumst þá stöndum við í stað og þá förum við að dragast aftur úr. Ég var með einn af fyrstu hópunum sem keyrði af stað 4DX verkefninu og það var bara stóraukið frumkvæði, nú tökum við bara upp símann og hringjum í viðskiptavini. Við útrýmdum frestun og styttum biðtíma með því að leysa málin bara strax.“
„7 venjur til árangurs er frábær bók sem hjálpar okkur ekki bara að ná persónulegum árangri heldur hjálpar hún okkur til að hafa jákvæð áhrif á alla í kringum okkur. Hún inniheldur afar verðmæta leiðsögn um hvernig við getum veitt betri forystu í lífi okkar. Þessi einstaka bók sáir fræjum sem hætta aldrei að vaxa!“

„Sýn Coveys á árangursríkar aðferðir fyrir einstaklinga og liðsheildir er í senn áhugaverð og uppbyggjandi. 7 Venjur til árangurs fjallar um hagnýtar leiðir til að vaxa og dafna í nútíma þekkingarsamfélagi. Lesning sem nýtist öllum til aukins árangurs í lífi og starfi.“

„Að öðrum ólöstuðum er Covey framúrskarandi þegar kemur að skrifum um raunverulegan og langvarandi árangur í lífi og starfi. Tímalaus viska hans og lífsreglur eru lykill að farsælu ferðalagi, hversu farsælt ferðalagið verður er þó undir lesandanum einum komið. Þá reynir fyrst og síðast á einbeitan vilja til að axla ábyrgð á eigin velferð og samferðamanna.“
