Hvernig má nýta áhrifarík samtöl maður á mann (1@1)

Make the mental leap to leader

Öflugir stjórnendur leggja sig reglulega fram um að taka samtöl við hvern og einn starfsmann. 1@1 samtöl geta auðveldlega orð tilbreytingarlaus og í reynd breyst í leiðinlegar stöðuuppfærslur ef ekki er hugað að nokkum lykilþáttum. Þótt að stöðuuppfærslur séu gagnlegar ætti að halda þeim aðskildum. Gildi einkasamtala liggur í því að komast að markmiðum, hvatningu og áhyggjum hvers einstaklings í teyminu. Haltu 1@1 samtölunum hvetjandi og árangursríkum með því að fylgja eftirfarandi sex skrefum.
 

  1. Minntu teymið á að tilgangur einkasamtala er að vekja máls á áhyggjum, fá þjálfun í að ná markmiðum og leysa vandamál.
  2. Undirbúðu þig vandlega: Farðu yfir fyrri skuldbindingar, þróunarmarkmið og endurgjöf sem þú vilt deila
  3. Biddu liðsmenn um að undirbúa fyrirfram það sem rætt verður á fundinum.
  4. Spurðu opinna þjálfunarspurninga á borð við eftirfarandi: Hvað gengur vel? Hvað er ekki að virka? Hvernig myndir þú gera hlutina öðruvísi?
  5. Veittu einlæga, rétt tímasetta og hjálplega endurgjöf
  6. Spurðu liðsmanninn um hvernig ryðja má hindrunum úr veginum.

Áhrifarík einkasamtöl leiða í ljós áhyggjur sem þú myndir annars ekki heyra. Þegar þau eru framkvæmd með árangursríkum hætti auka þau á virkjun og gefa vinnu annarra í teyminu aukinn tilgang.

Innifalið:

  • Vinnubók þátttakenda (vönduð innbundin bók á ensku eða íslensku)
  • Spilastokkur með efni og æfingum
  • Eftirfylgni í 12 vikur á vefpósti og í fjarnámi

make the mental leap to leader