Hafðu á hreinu hvenær veita á endurgjöf

Endurgjöf er nauðsynlegur þáttur í árangursríkri forystu og grundvallarverkfæri þegar kemur að þróun teymis þíns.

Að vita hvenær og í tengslum við hvað á að veita endurgjöf sker úrum hvort þú notar þetta lykilverkfæri stjórnenda með skilvirkum hætti.

Lærðu að greina hvenær þörf er á endurgjöf og hvenær ekki.

Ef þú leggur í vana þinn að veita árangursríka endurgjöf mun teymi þitt læra að búast við henni. Einnig eru líkur á að teymið muni þróast með hraðari hætti.

Notaðu eftirfarandi gátlista til að ákveða hvenær veita ætti endurgjöf.

  1. Er hegðun starfsmannsins röng eða bara öðruvísi en þín hegðun væri?
  2. Er starfsmaðurinn tilfinningalega undirbúinn fyrir endurgjöf? Ef hann er undir miklu álagi kanntu að vilja bíða. En mundu að það að fresta endurgjöf gæti dregið úr árangri hennar.
  3. Hverju öðru er starfsmaðurinn að reyna að breyta? Að breyta fleiri en 1–2 hegðunarmynstrum á sama tíma kann að vera yfirþyrmandi.
  4. Er hegðunin nógu alvarleg til að réttlæta endurgjöf? Taka verður strax á hegðun sem ógnar öðrum. En að jagast sífellt í málum sem eru í reynd lítilvæg mun á endanum kæfa teymi þitt.
  5. Framkvæmir starfsmaðurinn einhvern tímann viðkomandi aðgerð með réttum hætti? Ef svo er skaltu á því augnabliki gefa jákvæða endurgjöf í stað neikvæðrar.

make the mental leap to leader
Smelltu á myndina til að næla þér í handbók framúrskarandi stjórnenda
[MEC id=”11290″]