Gott fólk með Guðrúnu Högna | Skjöldur Sigurjónsson

Við kynnum með stolti nýtt hlaðvarp á vegum FranklinCovey – Gott fólk með Guðrúnu Högna. Þar fær Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey á Íslandi, til sín vel valda gesti úr atvinnulífinu og ræðir um ýmis málefni. Guðrún tekur innihaldsríkt samtal við reynda leiðtoga sem varpar ljósi á öfluga stjórnun, vaxandi vinnustaði, bestu ráð, góðar sögur, hagnýtar lexíur, og bara lífsins speki valdra viðmælenda.

Viðmælandi fjórða þáttar Góðs fólks er Skjöldur Sigurjónsson. Skjöldur er einn af athafnamönnum Íslands og rekur sem kunnugt er Ölstofuna og Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar. Farsæl uppbygging vörumerkis um áramótaskeið er ekki sjálfgefinn veruleiki í íslenskri smásölu – en næmni þeirra vinanna fyrir fólki, vörum, þjónustu, markaðssetningu og rekstri er lærdómur fyrir okkur öll.

Er vöxtur verslunarinnar og væntanlegur útflutningur á íslensku tweedi byggður á heppni? Eða liggur að baki ítarleg greiningarvinna á niche markaði og vönduð stefnumótunarvinna um hugmyndir og hönnun? Hvar liggja töfrarnir í rekstri Kormáks og Skjaldar?

Þáttinn má finna á Spotify eða með því að fylgja hlekknum hér að neðan:


Fleira sem þú gætir haft áhuga á

Frítt fagefni

Hagnýtar handbækur

Sæktu fjölda handbóka og verkfæra um veruleika vaxandi fólks og vinnustaða.

Færni og frammistaða

Forsenda framfara

Við látum okkur varða grunnfærni starfsfólks á þekkingaröld.  Uppgötvaðu hvernig við eflum fólk og vinnustaði til aukins árangurs með því að rækta  þekkingu, kunnáttu, viðhorf og færni sem er forsenda framfara í íslensku atvinnulífi

Stafrænt fræðslusetur

Leiðtoga
Akademían

Einstaklingsmiðað stjórnendanám fyrir leiðtoga á öllum stigum.

Hlaðvarp

Gott fólk með Guðrúnu Högna

Spjall við öfluga leiðtoga í íslensku samfélagi.