Gott fólk með Guðrúnu Högna | Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir

Við kynnum með stolti nýtt hlaðvarp á vegum FranklinCovey – Gott fólk með Guðrúnu Högna. Þar fær Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey á Íslandi, til sín vel valda gesti úr atvinnulífinu og ræðir um ýmis málefni. Guðrún tekur innihaldsríkt samtal við reynda leiðtoga sem varpar ljósi á öfluga stjórnun, vaxandi vinnustaði, bestu ráð, góðar sögur, hagnýtar lexíur, og bara lífsins speki valdra viðmælenda.

Ingibjörg Ösp hefur látið sig varða grunnstoðir íslensks samfélags í ábyrgðarstörfum sínum á sviði samkeppnishæfni, mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum atvinnulífisins og Samtökum iðnaðarins. 

Framlag hennar sem ráðgjafi mótast meðal annars af víðtækri stjórnunarreynslu sem framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, Menningarhússins Hofs og Leikfélags Akureyrar. 

Ingibjörg brennur fyrir mati á raunfærni og lífstíðarlærdómi og mikilvægu hlutverki atvinnulífsins í þróun hæfni og nýrrar þekkingar. 

Þáttinn má finna á Spotify eða með því að fylgja hlekknum hér að neðan:


Fleira sem þú gætir haft áhuga á

Frítt fagefni

Hagnýtar handbækur

Sæktu fjölda handbóka og verkfæra um veruleika vaxandi fólks og vinnustaða.

Færni og frammistaða

Forsenda framfara

Við látum okkur varða grunnfærni starfsfólks á þekkingaröld.  Uppgötvaðu hvernig við eflum fólk og vinnustaði til aukins árangurs með því að rækta  þekkingu, kunnáttu, viðhorf og færni sem er forsenda framfara í íslensku atvinnulífi

Stafrænt fræðslusetur

Leiðtoga
Akademían

Einstaklingsmiðað stjórnendanám fyrir leiðtoga á öllum stigum.

Hlaðvarp

Gott fólk með Guðrúnu Högna

Spjall við öfluga leiðtoga í íslensku samfélagi.